|
þriðjudagur, 27 júlí 2010 |
|
Nýtt fréttabréf Þróunafélagsins er komið út. Hægt er að skoða það hér
|
|
|
Björk Sigurgeirsdóttir hætt störfum hjá Þróunafélagi Austurlands |
|
þriðjudagur, 06 júlí 2010 |
|
Um síðastliðin mánaðarmót hætti Björk Sigurgeirsdóttir störfum hjá Þróunarfélagi Austurlands. Björk hefur verið starfsmaður félagsins frá árinu 2007 og lengst af gengt starfi framkvæmdastjóra Vaxtarsamnings Austurlands. Starfsfólk Þróunarfélagsins vill nota tækifærið og þakka samstarfið ásamt því að óska Björk velfarnaðar í komandi verkefnum.
|
|
|
Seinni úthlutun VAXA 2010 |
|
mánudagur, 21 júní 2010 |
|
Vaxtarsamningur Austurlands
Næsti umsóknafrestur í Vaxtarsamninginn er til 27. ágúst n.k. og verður auglýst eftir umsóknum í byrjun ágúst. Viljum við hvetja alla til að kynna sér samninginn og upplýsingar um umsóknaferlið sem eru inni á síðu Þróunarfélags Austurlands www.austur.is
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá starfsfólki Þróunarfélagsins í síma 471-2545 eða á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
|
miðvikudagur, 16 júní 2010 |
|
Fyrri útlhlutun Vaxtarsamnings Austurlands fór fram í maí síðastliðnum. Eftirtaldir aðilar fengu styrk.
| Austfirskar krásir |
1.000.000 kr. |
| Byggmjólk - Móðir jörð |
1.000.000 kr. |
| Dyrfjöll - Náttúrugarður - Geopark |
3.000.000 kr. |
| Matvælamiðstöð Austurlands |
3.000.000 kr. |
| Samstarf þýðenda |
1.500.000 kr. |
| Skálanes |
1.000.000 kr. |
Umsóknarfrestur fyrir næstu úthlutun verður auglýstur á næstunni.
|
|
|
Halla Hafbergsdóttir í fæðingarorlof |
|
mánudagur, 14 júní 2010 |
|
Halla Hafbergsdóttir, skrifstofustjóri Þróunarfélagsins er farin í fæðingarorlof. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til Ingibjargar
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða Hafliða
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
|
Viltu gerast félagi í Þróunarfélagi Austurlands? |
|
fimmtudagur, 03 júní 2010 |
|
Þróunarfélag Austurlands starfar að framþróun í atvinnulífi og jákvæðri samfélagsþróun á Austurlandi. Meðal helstu hlutverka Þróunarfélags Austurlands er að efla atvinnulíf og samfélag á Austurlandi, veita ráðgjöf við nýsköpun- og þróunarverkefni auk þess að veita ráðgjöf um bættan rekstur. Félagið hefur tekið þátt í fjölda verkefna á landsvísu sem og alþjóðlegum verkefnum sem ætlað er að styðja og styrkja við atvinnulífið á Austurlandi.
Félagar að ÞFA eru nú um rúmlega 50 og eru grundvöllur að starfsemi þess ásamt sveitarfélögum á Austurlandi og Byggðarstofnun. Félagsaðild að Þróunarfélagi Austurlands felur í sér að vera hluti af stórri heild sem tekur þátt í að byggja upp atvinnulíf á Austurlandi og styrkja stoðir samfélagsins. Félagsmenn eiga einnig rétt á 16 klst. vinnu frá starfsmönnum Þróunarfélagsins endurgjaldslaust á hverju ári.
Umsóknareyðublað má nálgast hér. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Þróunarfélaginu í síma 471 2545 eða á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
|
þriðjudagur, 01 júní 2010 |
|
Þróunarfélag Austurlands veitir einstaklingu og fyrirtækjum aðstoð við þróun á viðskiptahugmynd. Félagið er með viðtalstíma á Borgarfirði þriðjudaginn 8. júní n.k. Hægt er að bóka viðtalstíma í síma 471-2545 og með því að senda tölvupóst á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 12 af 442 |