AtvinnuþróunarsjóðurFrumkvöðlarStyrkirSSAVaxtarsamningurVöktunarverkefniVerkefni í nærmynd
ForsíðaÞróunarfélagiðÞjónustaStoðkerfiFélagsaðildEnglishFréttabréf

VEISTU HVERJIR ERU FÉLAGAR Í ÞFA?

____________________

Svæðisfréttir RÚV

____________________

agl.is
Vöktunarverkefni Prenta Senda
mánudagur, 16 október 2006

Rannsókn á samfélagsáhrifum af stóriðju- og virkjanaframkvæmdum á Austurlandi.

Vöktunarverkefninu er ætlað að rannsaka samfélagsáhrif af stóriðju- og virkjanaframkvæmdum á Austurlandi. Rannsakaðir eru helstu innviðir samfélagsins s.s. íbúafjölgun, húsnæðismál, atvinnumál o.fl.
Markmið verkefnisins er:

  • Safna gögnum sem geta orðið grundvöllur að mati sambærilegra (eða áþekkra) stórverkefna í framtíðinni.
  • Gefa stjórnvöldum bættar forsendur til að lágmarka neikvæðar afleiðingar sem kunna að hljótast af verkefnunum en hámarka hinar jákvæðu.
  • Framkvæma rannsókn sem hefur vísindalegt gildi í alþjóðlegu samhengi og rennir stoðum undir íslenskt rannsóknasamfélag um byggðatengd málefni.

Forsögu þessa verkefnis má rekja til þess að samþykkt var á Alþingi tillaga til þingsályktunar um að fela skyldi Byggðarannsóknastofnun Íslands í samvinnu við Þróunarstofu Austurlands (nú Þróunarfélags Austurlands) að fylgjast með samfélagsbreytingum og þróun byggðar og atvinnulífs á því landsvæði þar sem áhrifa álvers- og virkjunarframkvæmda á Austurlandi gætir mest.

Gagnaöflun:
 

  • Opinber gögn:  Söfnun margvíslegra tölulegra upplýsinga frá opinberum aðilum; til dæmis Hagstofunni og sveitarfélögum.
  • Gögn framkvæmdaaðila.  Söfnun margvíslegra lykilupplýsinga frá framkvæmdaaðilum, einkum er varða umsvif starfseminnar og atriði er lúta að starfsmönnum þeirra.
  • Úrtaksrannsóknir meðal fólks á Austurlandi og landinu öllu.  Spurningalistakannanir þar sem leitast er við að afla upplýsinga um breytingar á högum fólks og viðhorf þess.
  • Viðtalsrannsóknir meðal fólks og forsvarsmanna fyrirtækja.  Eigindleg viðtöl þar sem leitast er við að rannsaka þá merkingu sem fólk leggur í ýmis grundvallarhugtök.
  • Kannanir meðal fyrirtækja.  Sendir spurningalistar til fyrirtækja þar sem aflað er margvíslegra grunnupplýsinga um rekstur og afkomu.

Verkefnið hófst árið 2004 og lýkur síðla árs 2009 en niðurstöðum verður reglulega komið á framfæri með kynningarfundum, skýrslum og á heimasíðu Þróunarfélagsins.

Áfangaskýrsla - október 2006

 

 

vaxa-logo

 

 

Ársskýrsla VAXA 2008

ssa
Póstlisti Þróunarfélags Austurlands






 
 



hnappur_byggdastofnun lg-nmi

 

 

rts_logo_1