AtvinnuþróunarsjóðurFrumkvöðlarStyrkirSSAVaxtarsamningurVöktunarverkefniVerkefni í nærmynd
ForsíðaÞróunarfélagiðÞjónustaStoðkerfiFélagsaðildEnglishFréttabréf

VEISTU HVERJIR ERU FÉLAGAR Í ÞFA?

____________________

Svæðisfréttir RÚV

____________________

agl.is
Félagsaðild að Þróunarfélagi Austurlands Prenta Senda
fimmtudagur, 03 apríl 2008

Félagsaðild að Þróunarfélagi Austurlands felur í sér að vera hluti af stórri heild sem tekur þátt í að byggja upp atvinnulíf á Austurlandi og styrkja stoðir samfélagsins. Félagsmenn eiga einnig rétt á 16 klst. vinnu frá starfsmönnum Þróunarfélagsins endurgjaldslaust á hverju ári.

Þróunarfélag Austurlands er einstakt á Íslandi og hefur að baki sér stóran hóp virkra félaga en það skapar félaginu mjög traust bakland. Félagar eru fyrirtæki og sveitarfélög auk ýmissa stofnana og félagasamtaka. Aðild fyrirtækja að félaginu hefur verið því mjög mikilvæg undanfarin ár og þá ekki síst að nær öll stærstu fyrirtæki á Austurlandi og leiðandi fyrirtæki í mörgum greinum hafa stutt félagið dyggilega. 

Sveitarfélög á Austurlandi hafa einnig staðið mjög vel saman við að styðja félagið og skapað því mikilvægar forsendur fyrir traustum og árangursríkum rekstri. Betur og betur kemur í ljós að grundvallaratriði atvinnuþróunar og byggðaþróunar haldast í hendur.  Því hefur félagið í seinni tíð útvíkkað hlutverk sitt frá því að vera víðtækt í atvinnuþróun og stuðningi við bæði frumkvöðla og starfandi fyrirtæki.  Nú sinnir það einnig ýmsum samfélagslegum verkefnum öllu Austurlandi til góða. Slíkum verkefnum er ætlað að treysta samkeppnishæfni landshlutans gagnvart búsetu og laða að það fólk sem atvinnulífið þarf á að halda. Til fróðleiks má svo geta þess að þróunarfélög af svipuðu tagi og Þróunarfélag Austurlands eru í þúsunda tali bæði í Evrópu og Bandaríkjunum og talin mikilvægur þáttur í stuðningsumhverfi atvinnulífsins. Ólíklegt verður að telja að annað gildi um aðstæður á Íslandi og þá ekki síst á landsbyggðinni.

Stundum er spurt hvort starfsemi félagsins komi að gagni og nokkuð er um að fólki finnist starfsemi félagsins ekki nægjanlega sýnileg. Megin ástæða þess er að verkefni og þjónusta félagsins eru að öllu jöfnu trúnaðarmál milli þess og samstarfsaðila eða viðskiptavina, einkum þegar um viðskiptahugmyndir eða innviði fyrirtækja er að ræða. Verkefni sem félagið hefur forræði yfir er leitast við að kynna fyrir fjölmiðlum og jafnframt settar fréttir um þau á vef Þróunarfélagsins http://www.austur.is. Á vefnum er einnig að finna margvíslegar upplýsingar um starfsemina og eru félagsmenn  og aðrið íbúar á Austurlandi hvattir til að fylgjast með vefnum sem er í stöðugri mótun með því að skrá sig á póstlista vefsins.
Félagsgjöld í Þróunarfélag Austurlands 2009:

Fyrirtæki með fleiri en 50 starfsmenn 129.150 kr
Fyrirtæki með 20 - 50 starfsmenn 84.000 kr
Fyrirtæki með 10 - 20 starfsmenn 60.900 kr
Fyrirtæki með 5 - 10 starfsmenn  37.800 kr
Fyrirtæki með færri en 5 starfsmenn 23.100 kr
Fyrirtæki/eigandi eini starfsmaðurinn 15.225 kr

 
Samstaða og samvinna er lykillinn að frekari uppbyggingu á Austurlandi. Vonumst við hjá Þróunarfélagi Austurlands til að þú nýtir þetta tækifæri til að verða einn af fjölmörgum félögum Þróunarfélagsins sem standa vörð um framtíð fjórðungsins.

Umsóknareyðublað má nálgast hér 

Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Þróunarfélaginu í síma 471 2545 eða á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

 

vaxa-logo

 

 

Ársskýrsla VAXA 2008

ssa
Póstlisti Þróunarfélags Austurlands






 
 



hnappur_byggdastofnun lg-nmi

 

 

rts_logo_1