|
Styrkir til nýsköpunar - umsóknarfrestir í febrúar |
|
|
|
þriðjudagur, 26 janúar 2010 |
|
Iðnaðarráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar og er umsóknarfrestur til og með 16. febrúar. Átakið styrkir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Sótt er um rafrænt á vef Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Við síðustu úthlutun sjóðsins í desember var úthlutað 38.700.000 kr. til 50 verkefna en 305 umsóknir bárust. Nánar um Átak til atvinnusköpunar
Einnig hefur félags- og tryggingamálaráðuneytið auglýst styrki til atvinnumála kvenna. Vinnumálastofnun hefur umsjón með styrkveitingunum og er umsóknarfrestur til og með 7. febrúar. Nánar um Atvinnumál kvenna
|