|
Þróunarfélag Austurlands og Þekkingarnet Austurlands í samvinnu við Útflutningsráð Íslands mun bjóða upp á námskeið í markaðssetningu á netinu byggt á samnefndri bók sem var að koma út. Kennarar eru Guðmundur Arnar markaðsstjóri hjá Icelandair og Kristján Már hjá Nordic eMarketing.
Um hvað snýst námskeiðið?
Farið verður yfir helstu samskiptaleiðir netsins á hagnýtan hátt með áherslu á ferðaþjónustu og hvernig samskiptaleiðir netsins geta skapað til miklar tekjur. Markmiðið er að þátttakendur öðlist þekkingu sem nýtist þeim strax í starfi.
Kennslan byggir á bókinni „Markaðssetning á netinu“ en bókin er jafnframt innifalin í þátttökugjaldi námskeiðsins.
Um er að ræða rúmlega 4 klst. námskeið sem stendur frá kl. 11:30 – 16:00 þann 13. febrúar nk. hjá Þekkingarneti Austurlands á Egilsstöðum. Verð fyrir námskeið og bók er 18.500kr. Skráning er hjá Þekkingarneti Austurlands á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða í síma 471 2838 fyrir 11. febrúar.
Helstu þættir:
– Netið, breytingar og tækifæri
– Staðan í dag
– Vefborðar
– Leitarvélar
– Samfélagsmiðlar
– Kaffi, smá pása og spjall
– Tölvupóstar
- Vefgreiningartól
Um bókina sem er innifalin í námskeiðinu:
Bókin „ Markaðssetning á netinu“ hefur það að leiðarljósi að vera hagnýt verkfærakista fyrir íslenskt markaðsfólk sem er eða vill byrja að nota netið í sínu markaðsstarfi. Í henni er fjallað um allar helstu samskiptaleiðir netsins.
Bókin er jafnframt full af nýjum innlendum og erlendum rannsóknum um notkun fólks á netinu og hvernig ná má hámarksárangri. Ennfremur eru í bókinni fjölmagar íslenskar dæmisögur og tölur sem íslenskt markaðsfólk getur nýtt sér í daglegu störfum.
Í dag er allt markaðsstarf meira og minna unnið með netið í huga. Bókin kynnir nýjar áður óbirtar rannsóknir sýna hversu langt Íslendingar hafa náð í notkun netsins. Tækifæri íslenskra fyrirtækja eru því fjölmörg.
Eftir námskeiðið og lestur bókarinnar ætti fólk að vera mun betur upplýst um:
• …þær breytingar sem orðið hafa á hegðun neytenda
• …hið breytta umhverfi sem fyrirtæki og vörumerki starfa í
• …þau fjölmörgu tækifæri sem eru á netinu í dag og hægt er að nýta með litlum tilkostnaði
• …hvernig ná má hámarksárangri með vefborðum
• …hvernig ná má hámarksárangri með leitarvélum
• …hvernig ná má hámarksárangri með samfélagsmiðlum (Facebook o.s.frv.)
• …hvernig ná má hámarksárangri með tölvupóstum
• …hvernig netið kemur inn í hefðbundnar birtingaáætlanir
• …á hvern hátt vefgreiningartól virka og hvernig best er að nota þau
• …og fleira og fleira!
Fyrirlesarar og höfundar bókarinnar „Markaðssetning á netinu“
Guðmundur Arnar Guðmundsson er hagfræðingur frá Acadia University í Kanada og með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Hann hefur ritað fjölda greina um viðskipti og markaðsmál í tímarit og blöð á Íslandi og situr í stjórn ÍMARK, félags markaðsfólks á Íslandi. Hann hóf störf við markaðsmál hjá 365 ehf en flutti til Englands 2006 og starfaði þar hjá Icelandair sem markaðsstjóri breska sölusvæðisins. Nú starfar Guðmundur Arnar í markaðsdeild Icelandair á Íslandi og er fer fyrir markaðsstarfinu á Íslandi, hann sér um markaðsrannsóknir fyrirtækisins ásamt því að koma að stefnumótandi uppbyggingu vörumerkisins Icelandair.
Kristján Már Hauksson hefur komið víða við hann lærði rafeindavirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík, kerfisfræði við Tölvu og verkfræðiskólann og er með internet markaðsfræðigráðu frá University of British Columbia. Hann stofnaði Nordic eMarketing og starfar þar sem sviðsstjóri net- markaðssetningar. Þar sérhæfir hann sig í leitarvélamarkaðssetningu og net-almannatengslum (ePR – Online PR). Kristján Már stofnaði íslenska SEO/SEM samfélagið og skrifar reglulega á Multilingualsearch.com. Kristján hefur unnið við netlausnir síðan 1996 og leitarvélamarkaðssetningu frá 1999. Hann er vinsæll fyrirlesari um þessa nýju miðla jafnt innanlands sem utan og hefur haldið fjölmörg námskeið.
|