|
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Samtök iðnaðarins veita styrki til rannsókna á sviði Evrópufræða. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar
Markmið verkefnisins er að gefa nemendum á meistarastigi tækifæri til að vinna að rannsóknum sem í senn standast ýtrustu fræðilegu kröfur og beina sjónum að hagnýtum og knýjandi spurningum sem íslenskt atvinnulíf og samfélag varðar um.
Styrkupphæðin miðast við úthlutun Nýsköpunarsjóðs námsmanna til þriggja mánaða, en það eru um það bil 420 þúsund krónur. Einungis nemendur sem eru að hefja vinnu við lokaverkefni á meistarastigi koma til greina sem styrkþegar enda sé rannsóknarefnið í raun lokaverkefni nemenda, að hluta til eða í heild sinni. Við úthlutun styrksins er horft til fræðilegs og hagnýts gildis verkefnisins, skýrleika rannsóknaráætlunarinnar og greinargerð um það hvernig verkefnið muni nýtast íslensku atvinnulífi og samfélagi. Styrkirnir veita þannig nemendum tækifæri til að tengja rannsóknarverkefni sín atvinnulífinu þannig að báðir aðilar hagnist.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar og úthlutunarnefnd ákveður úthlutun innan mánaðar þaðan í frá. Allar nánari upplýsingar um styrkinn má finna á vefsíðu Alþjóðamálastofnunar www.hi.is/ams
Alþjóðamálastofnun og
Rannsóknasetur um smáríki
Háskóli Íslands
S: 525 5262
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
www.hi.is/ams/
Institute of International Affairs
Centre for Small State Studies
University of Iceland
Tel: + 354 525 5262
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
www.hi.is/ams/
|