|
Brautargengi á Austurlandi umsóknafrestur hefur verið lengdur til morguns 10.febrúar
Brautargengi er 70 tíma nám fyrir athafnakonur sem vilja hrinda viðskiptahugmyndum sínum í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki. Forsenda er að þær hafi viðskiptahugmynd til að vinna með. Kennt er einu sinni í viku í 15 vikna lotu, 4,5 klst. í senn.
Námskeiðið á Austurlandi 17. febrúar.
Nánari upplýsingar veitir Selma Dögg Sigurjónsdóttir,
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
, sími 522 9434.
Dagskrá:
Áfangi Dags.*
Viðskiptahugmyndin, Markmið, leiðtogahlutverkið og tímastjórnun 17.02.2010
Varan /þjónustan 24.02.2010
Framkvæmda— og verkáætlun 03.03.2010
Markaðsgreining 10.03.2010
Vinnusmiðja 12.03.2010
Markaðsáætlanir og markaðssetning 17.03.2010
Markaðssetning m. áherslu á internetið 24.03.2010
Starfsfólk og skipulag 31.03.2010
Form fyrirtækja 07.04.2010
Vinnusmiðja 09.04.2010
Skil á fyrri hluta áætlunar—kynningar 14.04.2010
Kostnaðargreining og núllpunktur 21.04.2010
Fjárhags, rekstrar og greiðsluáætlun 28.04.2010
Áhættumat og greining ársreikninga 05.05.2010
Samantekt—Vinnusmiðja 12.05.2010
Nemendur kynna viðskiptaáætlun sína 19.05.2010
Útskrift* 04.06.2010
*Með fyrirvara um breytingar
Kennt er vikulega á miðvikudögum frá 12:30-17:00.
Athugið að vinnusmiðjur eru áætlaðar á föstudögum.
Stuðningur:
Láttu það eftir þér að vinna með þínar eigin hugmyndir og hrintu þeim í framkvæmd. Það gerir það enginn fyrir þig!
Önnur þjónusta Impru er m.a.:
· Handleiðsla varðandi stofnun fyrirtækja.
· Styrkir til nýsköpunar.
· Upplýsingagjöf varðandi einkaleyfi.
· Ýmis námskeið og útgáfa fræðsluefnis.
Stuðningur Impru við þátttakendur á Brautargengi stendur þeim áfram til boða, endurgjaldslaust, að loknu námskeiði.
Hvað er Brautargengi?
Brautargengi er sérsniðið námskeið fyrir athafnakonur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur:
· Skrifi eigin viðskiptaáætlun.
· Kynnist grundvallaratriðum er varða stofnun og rekstur fyrirtækis.
· Öðlist hagnýta þekkingu á þáttum er lúta að fyrirtækjarekstri, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun.
· Öðlist tengsl við atvinnulífið í gegnum fyrirlesara, leiðbeinendur og aðra þátttakendur.
Námsþættir
· Mótun viðskiptahugmynda.
· Stjórnun og starfsmannamál.
· Markaðsmál.
· Rekstrar- og fjárhagsáætlanagerð.
· Hagnýt atriði við stofnun og rekstur fyrirtækis.
· Uppbygging kynninga og framsögn.
Námskeiðið er um 70 klst. sem kenndar eru á 14 vikum, einu sinni í viku í 4,5 klst. í senn.
Hámarksfjöldi er 15 þátttakendur.
Kennslan fer fram með fyrirlestrum og verkefnum í kennslutímum. Þátttakendur fá handleiðslu, þjálfun og tilsögn við verkefni sín milli fyrirlestra.
Vinnusmiðjur
Á námskeiðstíma er boðið upp á þrjár vinnusmiðjur utan skipulagðrar dagskrár. Í vinnusmiðjum gefst þátttakendum tækifæri til að vinna undir handleiðslu leiðbeinenda að sinni viðskiptaáætlun.
Einstaklingsbundin handleiðsla er einnig í boði hvenær sem er á meðan námskeiðinu stendur.
Námskeiðið á Austurlandi:
Næsta námskeið á Austurlandi, annað hvort í Fjarðabyggð (Reyðarfjörður) eða Fljótsdalshéraði (Egilsstaðir) verður haldið frá 17.02.2010 til 19.05.2010, umsóknafrestur er til 8. Febrúar 2010.
Nánari staðsetning námskeiðsins tekur mið af því hvaðan meirihluti þátttakenda kemur.
Kennt er einu sinni í viku frá febrúar til maí 2010 og lýkur námskeiðinu með útskrift á hverjum stað fyrir sig.
Innifalið
· Kennsla og leiðsögn.
· Námsgögn.
· Verkefnamappa.
· Kaffi og meðlæti í kennslustundum.
· Handleiðsla.
Verð
40.000 kr. sem má greiða í þrennu lagi yfir námskeiðstímann. (Ath. stéttarfélög hafa tekið þátt í greiðslu námskeiðskostnaðar).
Að námskeiðinu kemur hópur leiðbeinanda með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu.
Umsagnir þátttakenda
· Að setjast niður og gera viðskiptaáætlun um sitt eigið fyrirtæki er mikil reynsla. Einnig má ekki gleyma að fá þetta frábæra tækifæri til að kynnast öllum þessum frábæru konum sem voru með mér - og geta spjallað við þær um fyrirtækjarekstur - miðlað reynslu og fengið þeirra“
Arnrún Magnúsdóttir, Veitingastaðnum Friðrik V
· „Mæli með Brautargengi fyrir alla þá sem langar að ná lengra í viðskipum eða langar til að láta drauma sína um rekstur rætast.“
Anna Dögg Sigurjónsdóttir, DoReMí Akureyri
Skráning og frekari upplýsingar
Brautargengi á landsbyggðinni er í umsjón Selmu Daggar Sigurjónsdóttur, verkefnisstjóra hjá Impru á Akureyri.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar eru á vefsíðu Impru, www.impra.is, en einnig er velkomið að hafa samband með tölvupósti
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða hringja í síma 522 9434.
Umsóknarfrestur er til 8. febrúar 2010.
Inntökuskilyrði
Að þátttakandi hafi viðskiptahugmynd til að vinna með, ætli að hefja rekstur eða sé nú þegar í rekstri.
Þú vinnur með hugmyndina þína, skrifar heildstæða viðskiptaáætlun undir leiðsögn sérfræðinga og lærir um stofnun og rekstur fyrirtækja.
Reynsla annarra
Tæplega 800 hundruð konur hafa lokið Brautar-gengisnámi síðan fyrst var boðið upp á það
1996, þar af um 280 á landsbyggðinni.
Skv. könnun sem gerð var á árinu 2007 telja hátt í 70% þátttakenda að það hafi skipt mjög miklu máli fyrir rekstur fyrirtækisins að hafa sótt Brautargengi. Svipað hlutfall telur þátttöku í námskeiðinu hafa haft góð áhrif á þjónustu fyrirtækisins.
Með því að taka þátt í Brautargengisnámskeiði þá öðlast þátttakendur betri skilning á forsendum þess að hugmyndir þeirra að rekstri fyrirtækja geti gengið upp fjárhagslega, gott máltæki segir að í upphafi ferðar skal leiðin mörkuð
Vilt þú leggja af stað án þess að vera búin að reikna út grundvallaratriðin?
|