AtvinnuþróunarsjóðurFrumkvöðlarStyrkirSSAVaxtarsamningurVöktunarverkefniVerkefni í nærmynd
ForsíðaÞróunarfélagiðÞjónustaStoðkerfiFélagsaðildEnglishFréttabréf

VEISTU HVERJIR ERU FÉLAGAR Í ÞFA?

____________________

Svæðisfréttir RÚV

____________________

agl.is
Þjóðarvettvangur á Austurlandi – Icesave Prenta Senda
miðvikudagur, 24 febrúar 2010


Byggt á aðferðum og gildum Þjóðfundarins

Þekkingarnet Austurlands, Búðareyri 1 Reyðarfirði
laugardaginn 27. febrúar 2010 kl. 09:30-12:00

Út frá þrem stærstu gildum Þjóðfundarins 2009 hefur verið myndaður vettvangur á netinu þar sem gefst tækifæri á að ræða brýn þjóðfélagsmál í smáum hópum hvar sem er á landinu undir einföldum og ögðum vinnureglum. Fyrsta málið sem tekið verður fyrir er Icesavemálið.
 
Markmiðið er að fá fólk til að hittast í smáum hópum og ræða brýn málefni þannig að allir fái jafnt tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri eftir tilsettum leikreglum.

Tilgangurinn er að mynda uppbyggilega og agaða umræðu um erfið og tilfinningarík þjóðfélagsmál

Í lokin kemur hópurinn sér saman um eina setningu sem verður birt á www.thjodarvettvangur.is þar sem allar setningar úr öðrum umræðuhópum verða birtar og aðgengilegar. Setningarnar munu endurspeglar lausnamiðaðar áherslur útfrá umræðuefninu með mið af gildunum þremur; réttlæti, virðingu og heiðarleika.

Nánari upplýsingar um Þjóðarvettvang má finna á www.thjodarvettvangur.is. Vettvangurinn verður formlega opnaður laugardaginn 20. febrúar og verður opinn í eina viku til 27. febrúar.

 

Með von um umfjöllun og góða þátttöku,
Þjóðarvettvangur

 

Nánari upplýsingar veita:
Sigursteinn s: 863-8361
Þorgils s: 698-5302
Jónína s: 693-9814
María s: 858-5900
Skúli Örn s: 897-0798

Fulltrúi á Austurlandi:
Þekkingarnet Austurlands,
Stefanía G. Kristinsdóttir s. 891-6677

 

vaxa-logo

 

 

Ársskýrsla VAXA 2008

ssa
Póstlisti Þróunarfélags Austurlands






 
 



hnappur_byggdastofnun lg-nmi

 

 

rts_logo_1