|
Auglýst eftir styrkumsóknum til Norðursprota |
|
|
|
þriðjudagur, 11 maí 2010 |
|
Auglýst er eftir umsóknum í verkefnið Norðursprotar sem ætlað er að styðja við nýsköpunarhugmyndir einstaklinga í atvinnuleit á Norðausturlandi. Verkefnið er fjármagnað af samfélagssjóði Alcoa og unnið í samstarfi Alcoa, Háskólann á Akureyri og Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Styrkir eru veittir til gerðar viðskiptaáætlunar eða til frekari þróunar hennar og getur stuðningur við einstaklinga numið allt að 400 þús. kr. Umsóknarfrestur er til 26. maí 2010.
Sjá nánar á vef Impru http://www.nmi.is/impra/um-impru/frettir/nr/1010/
|