AtvinnuþróunarsjóðurFrumkvöðlarStyrkirSSAVaxtarsamningurVöktunarverkefniVerkefni í nærmynd
ForsíðaÞróunarfélagiðÞjónustaStoðkerfiFélagsaðildEnglishFréttabréf

VEISTU HVERJIR ERU FÉLAGAR Í ÞFA?

____________________

Svæðisfréttir RÚV

____________________

agl.is
Vaxtarsamnings verkefni Prenta Senda
mánudagur, 17 maí 2010
Kvikmyndaskóli Íslands hreiðrar um sig á Austurlandi! 

Dagana 24. – 30. maí nk. mun Kvikmyndaskóli Íslands hreiðra um sig á menningarsetrinu Eiðum. Þar munu hópur útskriftarnema ásamt kennurum bjóða Austfirðingum á öllum aldri upp á ókeypis námskeið í fjöldamörgum greinum er snúa að kvikmyndagerð og jafnframt kynna skólann. Sett verður upp fullkomið stúdíó á Eiðum með 12 tölvum og öllum græjum sem til þarf. Einnig mun hópurinn vinna að mynd um ferðina og sýna útskriftarverkefni sín.

 

Þetta er í fyrsta skipti sem Kvikmyndaskóli Íslands kemur til Austurlands og er þessi heimsókn að frumkvæði Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs – miðstöðvar sviðslista á Austurlandi í gegnum vaxtarsamningsverkefni miðstöðvarinnar - Cinema Maximus. Tilgangur dvalarinnar er að kynna kvikmyndaskólann fyrir Austfirðingum og jafnframt efla þekkingu kvikmyndagerðarlistarinnar í fjórðungnum.

 

Böðvar Bjarki Pétursson er stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands. Hann er kvikmyndagerðarmaður og ötull talsmaður kvikmyndagerðarnáms á Íslandi. Þessa dagana vinnur skólinn að því að verða viðurkenndur á háskólastigi en hann er núna viðurkenndur á framhaldsskólastigi. Nemendur hans geta valið um ólíkar námsleiðir sem eru 120 eininga brautir og lýkur með diploma í viðkomandi grein.

 Skráning á námskeið er á netfangið: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það - Nánar auglýst í Dagskránni á Austurlandi, á heimasíðu MMF og á Sláturhúsið á Facebook. 

Hér fylgir með saga Kvikmyndaskóla Íslands en þetta frumkvöðla- og hugsjónastarf Böðvars Bjarka er virkilega aðdáunarvert og sýnir berlega kraftinn á bak við þennan glæsilega skóla sem staðsettur er í sérhönnuðu húsnæði að Víkurhvarfi 1 í Kópavogi.

 

Heimasíða skólans er: http://www.kvikmyndaskoli.is

Heimasíða MMF er: http://mmf.egilsstadir.is

CINEMA MAXIMUS er vaxtarsamningsverkefni MMF,

Kvikmyndaskóla Íslands og Eiða ehf. Tengiliður er Ingunn Þráinsdóttir, Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða s. 899 5715.

 

vaxa-logo

 

 

Ársskýrsla VAXA 2008

ssa
Póstlisti Þróunarfélags Austurlands






 
 



hnappur_byggdastofnun lg-nmi

 

 

rts_logo_1