AtvinnuþróunarsjóðurFrumkvöðlarStyrkirSSAVaxtarsamningurVöktunarverkefniVerkefni í nærmynd
ForsíðaÞróunarfélagiðÞjónustaStoðkerfiFélagsaðildEnglishFréttabréf

VEISTU HVERJIR ERU FÉLAGAR Í ÞFA?

____________________

Svæðisfréttir RÚV

____________________

agl.is
Þróunarfélagið Prenta Senda

Þróunarfélag Austurlands vinnur með víðtækum hætti að atvinnu- og byggðaþróunarmálum. Tilgangur félagsins er að vinna með árangursríkum hætti að eflingu atvinnulífs og byggðar á landsbyggðinni. Þar skal haft að leiðarljósi frumkvæði, fagleg vinnubrögð og víðtækt samstarf við þá er hagsmuna eiga að gæta við efnahagslega og samfélagslega framþróun á Íslandi.  

Þróunarfélag Austurlands var stofnað á Seyðisfirði 20. maí 1983. Mikil áhersla hefur verið lögð á það frá upphafi að hafa starfsemi félagsins vel skilgreinda og þannig uppbyggða að á hverjum tíma væri hægt að takast á við nýjustu og brýnustu viðfangsefni samfélagsins.  Vafalítið er þetta ein helsta ástæða þess að starf félagsins hefur alla tíð verið farsælt þótt gefið hafi á bátinn stöku sinnum.  Félagið hefur óhikað verið aðlagað að þörfum umhverfisins sem m.a. má sjá á því að upphaflega var það iðnþróunarfélag, síðan atvinnuþróunarfélag og í dag þróunarfélag sem starfar á breiðum grunni að framþróun í Austfirsku samfélagi. Reksturinn er fjármagnaður með framlögum frá Byggðastofnun, sveitarfélögum á Austurlandi, Atvinnuþróunarsjóið Austurlands og með félagsgjöldum.

Starfsemi Þróunarfélags Austurlands greinist í fjögur starfssvið, þróunarsvið, viðskiptasvið, byggðasvið og skrifstofu. Fimm starfsmenn eru í föstu starfi, auk þess sem lausráðnir starfsmenn vinna að einstökum verkefnum eftir því sem efni standa til hverju sinni.  Höfuðstöðvar Þróunarfélags Austurlands eru að Miðvangi 2 á Egilsstöðum, en auk þess er starfsstöð í Nýheimum á Höfn í Hornafirði þar sem sinnt er verkefnum á Suð-Austurlandi og reglulega viðveru á Vopnafirði.

 

 

vaxa-logo

 

 

Ársskýrsla VAXA 2008

ssa
Póstlisti Þróunarfélags Austurlands






 
 



hnappur_byggdastofnun lg-nmi

 

 

rts_logo_1