Atvinnuþróunarsjóður Austurlands hefur þann tilgang að stuðla að þróun og eflingu atvinnulífs á Austurlandi með kaupum á hlutafé í fyrirtækjum, lánveitingum og úthlutun styrkja.
Búnaðarsamband Austurlands er ráðgjafar- og leiðbeiningastofnun fyrir bændur í Múlasýslum og hefur þann tilgang að efla landbúnað og gæta hagsmuna þeirra sem landbúnað stunda.
Ferðamálasamtök Austurlands standa fyrir almennri kynningu á Austurlandsfjórðungi og þeim möguleikum sem landshlutinn býður upp á í ferðamálum.
Þekkingarnet Austurlands býður upp á nám á háskólastigi og símenntun á Austurlandi og stuðlar að eflingu símenntunar og fullorðinsfræðslu í fjórðungnum á sem flestum sviðum.
Héraðsskógar hafa það markmið að stuðla að ræktun fjölnytjaskóga og skjólbelta á Austurlandi og verndun og umhirðu þess skóglendis sem fyrir er og efla byggð í dreifbýli.
Markaðsstofa Austurlands sér um kynningu á Austurlandi til ferðaskrifstofa og ferðasala og rekur upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, íbúa Austurlands og aðra sem leita eftir upplýsingum um fjórðunginn.
Aðrir tengdir stoðaðilar
Ferðavefur Austurlands inniheldur upplýsingar, á íslensku og ensku, um alla ferðaþjónustu sem í boði er í Austurlandsfjórðungi ásamt ýmsum öðrum fróðleik.
Fjárfestingavefur Austurlands er á ensku og gefur upplýsingar um aðstæður á Austurlandi með tilliti til fjárfestingakosta á svæðinu.
Menningarráð Austurlands er samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Austurlandi um eflingu menningar í fjórðungnum og sér um framkvæmd samnings við menntamálaráðherra um menningarmál.
Matís er með útibú í Neskaupstað. Aðalstarfsemin felst í þjónustmælingum auk þess sem framkvæmdar eru helstu efnagreiningar og örveruræktanir sem fiskiðnaður á Austurlandi þarfnast.
Samband sveitarfélaga á Austurlandi er frjáls þjónustu- og samstarfsvettvangur allra sveitarfélaga á Austurlandi. Meginmarkmið þess er að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum þessara sveitarfélaga.
Vinnumálastofnun á Austurlandi annast m.a. skráningu atvinnulausra, aðstoðar við atvinnuleit, veitir upplýsingar og ráðgjöf og aðstoðar atvinnurekendur við leit að starfsfólki.
|