|
Þjónusta Þróunarfélags Austurlands er innt af hendi á fjórum starfssviðum: Þróunarsviði sem stýrir daglegum rekstri, vinnur að mótun þróunarverkefna og samþættingu þróunarstarfs. Viðskiptasviði þar sem unnið er að margháttuðum verkefnum sem stuðla að nýsköpun og framþróun í atvinnulífi. Byggðasviði sem sinnir fjölda verkefna sem tengjast því að efla austfirskt samfélag og bæta samkeppnishæfni þess. Skrifstofu sem sér um almennt skrifstofuhald og bókhald og vinnur að kynningarmálum í samstarfi við önnur starfssvið. Hvert svið hefur forstöðumann sem vinnur að mótun viðfangsefna þess, innir af hendi og stjórnar daglegum verkefnum og ber ábyrgð á starfi sviðsins gagnvart framkvæmdastjóra.
|