Vaxtarsamningur Austurlands er samningur milli Þróunarfélags Austurlands og Iðnaðarráðuneytis sem hefur það að markmiði að styðja við þau verkefni sem falla undir markmið hans.
Meginhugmynd í vaxtarsamningum er samstarf í svokölluðum klösum, þar sem leitast er við að efla samvinnu fyrirtækja og stofnana á ákveðnum sviðum sem á einhvern hátt geta unnið saman og nýtt styrkleika hvers annars, jafnvel þótt fyrirtækin séu að öðru leyti í samkeppni.
Þann 11.febrúar 2010 var skrifað undir nýjan Vaxtarsamning Austurlands sem gildir næstu fjögur árin. Vaxtarsamningur Austurlands er í umsjón Þróunarfélags Austurlands og hefur það að meginmarkmiði að efla Austurland sem eftirsóttan valkost til búsetu. Þetta er gert með því að stuðla að atvinnuþróun með uppbyggingu svokallaðra klasa og tengslaneta en samstarf þriggja eða fleiri aðila er grundvöllur fyrir því að verkefni fái styrk úr samningnum. Stefna nýs Vaxtarsamnings er að styðja við uppbyggingu í anda náttúru og sjálfbærni.
Sem dæmi um verkefni sem hafa fengið styrk úr fyrri Vaxtarsamning eru; Tengslanet austfirskra kvenna sem hefur verið tekið til fyrirmyndar í öðrum landshlutum, Þjóðleikur, Hreindýraklasi, Matarvælamiðstöð Austurlands, Fuglaverkefni Djúpavogs, Í Ríki Vatnajökuls, Samtök kræklingaræktenda á Austurlandi og móttaka skemmtiferðaskipa.
Klasar - samstarf í samkeppni
Klasi er hópur fyrirtækja og stofnana sem staðsett eru nálægt hvort öðru og njóta góðs af nálægðinni. Klasahugtakið á uppruna sinn í rannsóknum hagfræðinga á velgengi ákveðinna iðnaðarsvæða t.d. á Norður Ítalíu. Í ljós hefur komið að aðgengi að náttúruauðlindum eða nálægð við markað er ekki forsenda velgengni, ef fyrirtæki á ákveðnu svæði ná að þróa náið samstarf sín á milli. Árangursríkast er svokallað "triple helix" samstarf. Þá koma saman einkafyrirtæki, háskólar og opinberir aðilar ss. atvinnuþróunarfélög. Vandinn við þessa nálgun er að oft getur verið erfitt að skapa svona samstarf frá grunni. Klasasamstarf getur aldrei verið markmið í sjálfu sér, heldur ber að líta á það sem ákveðna leit til að greina og þróa áfram atvinnulíf svæða.

































