Atvinnuþróunarsjóður Austurlands hefur þann tilgang að stuðla að þróun og eflingu atvinnulífs á Austurlandi með kaupum á hlutafé í fyrirtækjum og úthlutun styrkja. Sjóðurinn er í umsjá Þróunarfélags Austurlands en sveitarfélögin á Austurlandi leggja til fjármagn.
Sjóðnum er ætlað að auðvelda innkomu fyrir smærri verkefni og er afar mikilvægur austfirsku samfélagi. Þróunarfélagið fylgir eftir þeim hugmyndum sem hljóta stuðning úr sjóðnum.
Meðal verkefna sem um ræðir eru:
• Markaðsáætlanir
• Arðsemiskannanir
• Rekstraráætlanir
• Fjárhagsáætlanir
• Vöruþróunarverkefni
• Gerð umsókna vegna styrkja og lána
• Hlutafjáraukning
Hámarks styrkjahlutfall fer eftir eðli og umfangi hvers verkefnis fyrir sig en miðað er við styrkupphæð kr. 500.000,-
Nánari upplýsingar veita starfsmenn nýsköpunar- og þróunarsviðs Austurbrúar í síma 470 3870 eða í netfangi: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Framkvæmdastjóri sjóðsins er Hafliði H. Hafliðason.



























