|
Viðvera á Djúpavogi og Breiðdalsvík |
|
þriðjudagur, 18 maí 2010 |
|
Þróunarfélag Austurlands veitir einstaklingu og fyrirtækjum aðstoð við þróun á viðskiptahugmynd. Félagið er með viðtalstíma á Djúpavogi og Breiðdalsvík fimmtudaginn 27.maí n.k. Hægt er að bóka viðtalstíma í síma 471-2545 og með því að senda tölvupóst á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
|
mánudagur, 17 maí 2010 |
|
Kvikmyndaskóli Íslands hreiðrar um sig á Austurlandi!
Dagana 24. – 30. maí nk. mun Kvikmyndaskóli Íslands hreiðra um sig á menningarsetrinu Eiðum. Þar munu hópur útskriftarnema ásamt kennurum bjóða Austfirðingum á öllum aldri upp á ókeypis námskeið í fjöldamörgum greinum er snúa að kvikmyndagerð og jafnframt kynna skólann. Sett verður upp fullkomið stúdíó á Eiðum með 12 tölvum og öllum græjum sem til þarf. Einnig mun hópurinn vinna að mynd um ferðina og sýna útskriftarverkefni sín.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
sunnudagur, 16 maí 2010 |
|
Þróunarfélag Austurlands veitir einstaklingu og fyrirtækjum aðstoð við þróun á viðskiptahugmynd. Félagið er með viðtalstíma á Seyðisfirði þriðjudaginn 25.maí n.k. Hægt er að bóka viðtalstíma í síma 471-2545 og með því að senda tölvupóst á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
|
Auglýst eftir styrkumsóknum til Norðursprota |
|
þriðjudagur, 11 maí 2010 |
|
Auglýst er eftir umsóknum í verkefnið Norðursprotar sem ætlað er að styðja við nýsköpunarhugmyndir einstaklinga í atvinnuleit á Norðausturlandi. Verkefnið er fjármagnað af samfélagssjóði Alcoa og unnið í samstarfi Alcoa, Háskólann á Akureyri og Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Styrkir eru veittir til gerðar viðskiptaáætlunar eða til frekari þróunar hennar og getur stuðningur við einstaklinga numið allt að 400 þús. kr. Umsóknarfrestur er til 26. maí 2010.
Sjá nánar á vef Impru http://www.nmi.is/impra/um-impru/frettir/nr/1010/
|
|
|
Verkefnið Almenningssamgöngur í dreifbýli |
|
mánudagur, 03 maí 2010 |
|
Í síðasta bændablaði er grein eftir Ingigerði Erlingsdóttir verkefnastjóra hjá Þróunarfélagi Austurlands, þar segir hún frá verkefninu Almenningssamgöngur í dreifbýli sem Þróunarfélagið tekur þátt í. Verkefnið er fjölþjóðlegt samstarfsverkefni sem styrkt hefur verið af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins.
Greinina ná lesa á slóðinni http://www.bondi.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=2757
|
|
|
föstudagur, 30 apríl 2010 |
|
Hvatningarverðlaun Þróunarfélags Austurlands voru afhent á aðalfundi félagsins í Végarði í Fljótsdal í gær. Þetta er í 10. skiptið sem verðlaunin eru afhent og voru það Fjarðaþrif ehf. sem hlutu verðlaunin í ár.
Fjarðaþrif er austfirskt fjölskyldufyrirtæki sem veitir alhliða hreingerningarþjónustu með 35 manns í vinnu um allt Austurland. Fyrirtækið var stofnað í apríl 2003 og framkvæmdastjóri þess er Lára Elísabet Eiríksdóttir. Í dag reka Fjarðaþrif ehf. einnig Böggablóm, Böggabón, þvottahús, móttöku í endurvinnslu og móttöku fyrir Landflutninga.
Þróunarfélagið óskar Fjarðaþrif til hamingju með verðlaunin
|
|
|
Íslensk hönnun – austfirsk hönnun - |
|
föstudagur, 30 apríl 2010 |
Nytjahlutir úr austfirskum trjávið.
Afrakstur hönnunarverkefnis Epals við 12 hönnuði og 12 fyrirtæki.
Opnun sýningar í Níunni föstudaga 30.apríl kl.20.30
Eyjólfur Pálsson í Epal átti frumkvæði að verkefninu en það var unnið með stuðningi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Menningarráðs Austurlands og Skógræktar ríkisins.
Markmiðið var að nýta íslenskt hráefni í framleiðslu á verkum íslenskra hönnuða en viðurinn kom úr skógunum á Héraði og framleiðendur frumgerðanna voru flestir frá Austurlandi.
Þessi fyrsta hönnunarsýning á vegum Þorpsins verður opnuð í sameiginlegu húsnæði nýrrar Upplýsingarmiðstöðvar/Markaðsstofu Austurlands og Húss Handanna sem opna mun á ný í breyttri og bættri mynd í byrjun júní.
Sýningin verður opin laugardag og sunnudag 1.og 2.maí frá kl.14.00 – 17.00 og virka daga næstu viku á opnun Upplýsingarmiðstöðvar Austurlands. (Staðsett í sama húsnæði.)
Allir velkomnir.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 25 - 36 af 459 |