AtvinnuþróunarsjóðurFrumkvöðlarStyrkirSSAVaxtarsamningurVöktunarverkefniVerkefni í nærmynd
ForsíðaÞróunarfélagiðÞjónustaStoðkerfiFélagsaðildEnglishFréttabréf

VEISTU HVERJIR ERU FÉLAGAR Í ÞFA?

____________________

Svæðisfréttir RÚV

____________________

agl.is
Frestun á fundi
þriðjudagur, 23 mars 2010

Kynning sem átti að vera í morgunn 24 mars á smáframleiðslu og ferðaþjónustu er fresta af óviðráðanlegum orsökum.

Fundurinn verður haldin samhliða aðalfundi Austfiskra Krása þann 7. apríl kl 16:30

Er beðist velvirðingar á þessum breytingum.

 
Þekkingarnet Íslands-Draumurinn um sjálfbært þekkingarsamfélag
þriðjudagur, 16 mars 2010

Ráðstefna 23. mars 2010
Þekkingarnet Austurlands, Búðareyri 1 Reyðarfirði kl. 9:30
Markmið ráðstefnunnar er að kynna niðurstöður úr þekkingaryfirfærsluverkefninu „Net-University“ þar sem fram koma lausnir og leiðir í átt að samræmdu dreifnámsframboði, stoðþjónustu og þróunarumhverfi fyrir staðbundið nám. Kynnt eru dæmi um samstarfsnet, samræmd námsumhverfi, staðbundið háskólanám og mikilvægi alls þessa í byggðaþróun. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.nethaskolinn.is.

Ráðstefnan er öllum opin en ráðstefnugjald er kr. 2.000 en innifalið í því eru léttar veitingar á ráðstefnunni og rútuferðir frá og til Egilsstaða. Skráning fer fram hjá Þekkingarneti Austurlands á sérstöku eyðublaði á vefsíðu www.tna.is og í síma 471-2838, síðasti dagur fyrir skráningu er föstudagurinn 19. mars.
Nánari upplýsingar um verkefnið og ráðstefnuna veitir verkefnastjóri, Stefanía G. Kristinsdóttir,
framkvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands, Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það og sími 891-6677.

 

Lesa meira...
 
Fréttabréf ÞFA
föstudagur, 12 mars 2010

 

Hér gefur að líta fréttabréf Þróunarfélags Austurlands, þar máfinna upplýsingar um starfssemi félagsins og starfsmenn þess

Fréttabréf 1 tbl 2010

Fréttabréf 2.tbl 2010

 
Krásir - matur úr héraði
mánudagur, 08 mars 2010


Impra á Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofa óska eftir umsóknum um þátttöku í verkefninu Krásir sem er fræðslu og þróunarverkefni í svæðisbundinni matargerð. Í verkefnin verður boðið upp á fræðslu auk faglegs og fjárhagslegs stuðnings við þróun og sölu matvæla.

Þátttaka í verkefninu er opin einstaklingum og litlum fyrirtækjum á landsbyggðinni, eða samstarfshópum einstaklinga og lítilla fyrirtækja, sem óska eftir að vinna saman við þróun á matvörum. Matvörurnar þurfa að vera ákveðin nýjung, en hafa um leið sterka skírskotun til viðkomandi svæða eða menningar. Verkefnin þurfa einnig að vera í sterkum tengslum við ferðaþjónustu, t.d. með sölu beint til ferðamanna, á sveitahótelum, gististöðum eða í veitingahúsum á landsbyggðinni.

Umsóknarfrestur er til 18. mars 2010.

Lesa meira...
 
Samfélagssjóður alcoa
þriðjudagur, 02 mars 2010

Framtíðarhagsmunir Alcoa Fjarðaáls og samfélagsins fara saman og fyrirtækið leggur sitt af mörkum til að stuðla að framgangi góðra mála á Austurlandi. Alcoa Fjarðaál hefur tekið þátt í samvinnuverkefnum með öðrum fyrirtækjum og opinberum aðilum og veitt fjárstyrki til ýmissa verkefna.

Samfélagsstyrkir Alcoa Fjarðaáls
Sótt er um styrki sem eru undir 2 milljónum króna hjá Alcoa Fjarðaáli. Stuðningur er einungis veittur frjálsum félagasamtökum. Ekki eru veittir styrkir til einstaklinga, stjórnmálasamtaka, trúfélaga eða til almenns reksturs félaga. Þeir málaflokkar sem eru styrktir eru:

   

Lesa meira...
 
Þjóðarvettvangur á Austurlandi – Icesave
miðvikudagur, 24 febrúar 2010


Byggt á aðferðum og gildum Þjóðfundarins

Þekkingarnet Austurlands, Búðareyri 1 Reyðarfirði
laugardaginn 27. febrúar 2010 kl. 09:30-12:00

Lesa meira...
 
Hugmyndabanki
fimmtudagur, 18 febrúar 2010

Þróunarfélag Austurlands auglýsir eftir hugmyndum í nýjan hugmyndabanka. Um er að ræða hugmyndir að rekstri og/eða atburðum sem ykkur finnst að einhver annar ætti að gera.
Oft heyrir maður setninguna það ætti eitthver að.....! þetta eru hugmyndir sem við viljum taka saman og setja á heimsíðu ÞFA og þannig vonandi gefið framtaks sömum aðilum hugmyndir að rekstri.

hugmyndir má senda á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 49 - 60 af 459

vaxa-logo

 

 

Ársskýrsla VAXA 2008

ssa
Póstlisti Þróunarfélags Austurlands






 
 



hnappur_byggdastofnun lg-nmi

 

 

rts_logo_1