|
þriðjudagur, 09 febrúar 2010 |
|
Brautargengi á Austurlandi umsóknafrestur hefur verið lengdur til morguns 10.febrúar
Brautargengi er 70 tíma nám fyrir athafnakonur sem vilja hrinda viðskiptahugmyndum sínum í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki. Forsenda er að þær hafi viðskiptahugmynd til að vinna með. Kennt er einu sinni í viku í 15 vikna lotu, 4,5 klst. í senn.
Námskeiðið á Austurlandi 17. febrúar.
Nánari upplýsingar veitir Selma Dögg Sigurjónsdóttir,
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
, sími 522 9434.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Námskeið í Þekkinganetinu |
|
þriðjudagur, 09 febrúar 2010 |
|
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á námskeið!
Fjölmörg námskeið eru að hefjast hjá Þekkingarneti Austurlands og ennþá mögulegt að skrá sig til þátttöku á eftirfarandi námskeið:
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Styrkir til rannsókna á sviði Evrópufræða |
|
mánudagur, 08 febrúar 2010 |
|
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Samtök iðnaðarins veita styrki til rannsókna á sviði Evrópufræða. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar
Markmið verkefnisins er að gefa nemendum á meistarastigi tækifæri til að vinna að rannsóknum sem í senn standast ýtrustu fræðilegu kröfur og beina sjónum að hagnýtum og knýjandi spurningum sem íslenskt atvinnulíf og samfélag varðar um.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
fimmtudagur, 04 febrúar 2010 |
|
Sjávarútvegssýningin Fish International 2010 verður haldin í Bremen dagana 21.-23. febrúar nk. Á sýningunni í ár verður í fyrsta skipti skipulagt fyrirtækjastefnumót og býðst fyrirtækjum þannig aðstoð við að finna mögulega samstarfsaðila og skipuleggja viðskiptafundi fyrirfram.
Á vegum Enterprise Europe Network hefur nú verið opnað sérstakt vefsvæði í tengslum við sýninguna þar sem sýnendur og sýningargestir geta skráð sig og komið upplýsingum um sig og fyrirtæki sín á framfæri við aðra þátttakendur. Þar er svo hægt að skoða upplýsingar um önnur fyrirtæki og óska eftir fundum.. Þau fyrirtæki sem skrá sig á vefinn og taka þátt í fyrirtækjastefnumótinu fá frían aðgang að sýningunni.
Fish International er nú haldin í 12. sinn. Sýningin, sem haldin er annað hvert ár, er ein sú stærsta í sjávarútvegi í Þýskalandi og mjög mikilvæg fyrir þýska markaðinn.
Nánari upplýsingar veitir Erna Björnsdóttir hjá Útflutningsráði,
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
|
miðvikudagur, 03 febrúar 2010 |
|
Í janúar s.l. hóf störf hjá Þróunarfélagi Austurlands Ormarr Örlygsson, sem áður starfaði sem framkvæmdastjóri útflutnings hjá Alcoa-Fjarðaáli. Ormarr mun veita félagsmönnum (fyrirtækjum) Þróunarfélagsins aðstoð og ráðleggingar, til dæmis á sviði rekstrar eða við að meta viðskiptahugmyndir. Markmiðið er að hlúa enn betur að starfandi fyrirtækjum á Austurlandi. Verkefnið er tímabundið og er styrkt af Alcoa-Fjarðaáli. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Þróunarfélagið í síma 471-2545 eða á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
|
Styrkir til námsheimsókna |
|
þriðjudagur, 02 febrúar 2010 |
|
Auglýst er eftir umsóknum um námsheimsóknir skólaárið 2010 - 2011. Sú nýbreytni er nú tekin upp að umsóknarfrestir eru tveir. Fyrri umsóknarfrestur fyrir tímabilið september 2010 - febrúar 2011, er 31. mars 2010, og seinni umsóknarfrestur fyrir mars - júní 2011, er 15. október 2010.
Landskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins hefur sem fyrr umsjón með námsheimsóknum, en allar nánari upplýsingar um heimsóknirnar koma fram í yfirlitsriti sem CEDEFOP stofnunin í Grikklandi sér um að gefa út. Yfirlitsritið má nálgast á vefsíðunni:
http://www.cedefop.europa.eu/EN/publications/15186.aspx
Umsóknir skal fylla út rafrænt, en útprentuðu eintaki skal skila til:
Landskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins,
Tæknigarði, Dunhaga 5,
107 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar um heimsóknirnar fást hjá Ástu Sif Erlingsdóttur, netfang:
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
, sími: 525 4227.
Ásta Sif Erlingsdóttir
Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands
Research Liaison Office
Dunhaga 5, IS 107 Reykjavík, Iceland
phone: + 354 525 4227
fax: + 354 552 8801
mobile: + 354 697 9998
http://rthj.hi.is
|
|
|
Brautargengi á Austurlandi |
|
þriðjudagur, 02 febrúar 2010 |
|
Brautargengi á Austurlandi
Brautargengi er 70 tíma nám fyrir athafnakonur sem vilja hrinda viðskiptahugmyndum sínum í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki. Forsenda er að þær hafi viðskiptahugmynd til að vinna með. Kennt er einu sinni í viku í 15 vikna lotu, 4,5 klst. í senn.
Námskeiðið á Austurlandi 17. febrúar. Umsóknarfrestur er til 8. febrúar.
Upplýsingar um Brautargengi á landsbyggðinni veitir Selma Dögg Sigurjónsdóttir,
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
, sími 522 9434.
Brautargengi
Námskeið
FYRIR KONUR
um STOFNUN OG REKSTUR
FYRIRTÆKJA
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 61 - 72 af 459 |