AtvinnuþróunarsjóðurFrumkvöðlarStyrkirSSAVaxtarsamningurVöktunarverkefniVerkefni í nærmynd
ForsíðaÞróunarfélagiðÞjónustaStoðkerfiFélagsaðildEnglishFréttabréf

VEISTU HVERJIR ERU FÉLAGAR Í ÞFA?

____________________

Svæðisfréttir RÚV

____________________

agl.is
Háskólabrú Austurlands
þriðjudagur, 15 desember 2009

Umsóknafrestur til 4. janúar

Háskólabrú Keilis er aðfaranám að háskólanámi og fer það nú í fyrsta skipti fram á  Austurlandi . Skráning er hafin á Keilir.net og hefst námið í janúar 2010. Um er að ræða blandað námsfyrirkomulag sem felst í því að nemendur eru í fjarnámi hjá Keili en staðbundnar vinn lotur verða á Austurlandi á fimm vikna fresti . Loturnareru skipulagðar og kenndar af staðkennurum sem jafnframt eru nemendum til aðstoðar á milli lota.  Um er að ræða fullt eða hálft nám sem kennt er á tveimur önnum á félagsvísinda- og lagabraut. Þeir sem vilja stunda nám á öðrum brautum geta tekið sameiginlega áfanga á Háskólabrú Austurlands og aðra áfanga í fjarnámi frá Keili.  Námið er 58 einingar á framhaldsskólastigi og kostar hver eining 10.000 krónur.

 

Lesa meira...
 
Viltu verða orkubóndi
mánudagur, 14 desember 2009

Viltu verða orkubóndi og framleiða þína eigin orku? Allir geta orðið orkubændur!

Orkubóndinn er fyrir áhugafólk um virkjun orku, einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur og bændur sem hafa hug á að beisla orkuna heima fyrir.

Lesa meira...
 
Fundur um eflingu sveitarstjórnarstigsins
mánudagur, 14 desember 2009

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskara sveitarfélaga og Samband sveitarfélaga á Austurlandi boða til sameiginlegs kynningarfundar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið, á Egilsstöðum mánudaginn 14. desember.

Fundurinn er haldinn í kjölfar þess að nýlega undirrituðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga yfirlýsingu um að skipa samstarfsnefnd til að ræða og meta sameiningarkosti sveitarfélaga í hverjum landshluta. Nefndin skal kynna sér stöðu mála í einstökum landshlutum og viðhorf sveitarstjórnarmanna og almennings til sameiningar. Að því loknu skal hún leggja fram drög um sameiningarkosti í hverjum landshluta og verði þau lögð fyrir landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2010 til umræðu og álits. Að því loknu mun ráðherra leggja fyrir Alþingi áætlun um sameiningar sveitarfélaga til ársins 2014 sem byggist á umræðum og áliti landsþingsins.

 

Lesa meira...
 
Vísindakaffi
föstudagur, 11 desember 2009

Ágúst Þór Árnason brautarstjóri BA náms í lögfræði við Háskólann á Akureyri heldur fyrirlestur á Vísindakaffi

föstudaginn 11. desember nk. á Gistihúsinu á Egilsstöðum.

ÍSLENSK UTANRÍKISPÓLITÍK Á HEIMSKAUTASVÆÐUM Fyrirlesturinn hefst kl. 12 og fundinum lýkur kl. 14.

Boðið verður upp á súpu og brauð við vægu verði.

Það eru allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.

 
Verkefni í nærmynd
þriðjudagur, 08 desember 2009

Rural Transport Solutions/ Samgöngulausnir í dreifbýli
Þróunarfélag Austurlands er þátttakandi í NPP verkefni um almenningssamgöngur á Austurlandi (Fjarðabyggð). Styrkur til verkefnisins fékkst til þriggja ára. Markmiðið er m.a. að finna hagkvæmari leiðir í almenningssamgöngum á dreifbýlum svæðum, kanna nýjar leiðir/lausnir og efla þekkingu almennings á mikilvægi almenningssamgangna. Samstarfsaðilar í verkefninu eru frá Finnlandi, Svíþjóð, Skotlandi og Hjaltlandseyjum. Innlendir samstarfsaðilar eru sveitarfélagið Fjarðabyggð og Vegagerðin. Gert er ráð fyrir að eitt stöðugildi á ári tilheyri verkefninu af hálfu ÞFA.

 

 
Norðursprotar
fimmtudagur, 03 desember 2009

Býrð þú yfir viðskiptahugmynd sem getur leitt til nýsköpunar á Norðausturlandi? Þá er verkefnið Norðursprotar fyrir þig.

Norðursprotar er fjármagnað af samfélagssjóði Alcoa og unnið í samstarfi Alcoa, Háskólans á Akureyri og Impru á Nýsköpunarmiðstöð.

Markmið Norðursprota er að styðja við nýsköpunarhugmyndir einstaklinga á Norðausturlandi, þ.e.a.s. á svæðinu frá Djúpavogi til og með Eyjafjarðar.  Styrkir eru veittir til gerðar viðskiptaáætlunar, eða til frekari  þróunar viðskiptaáætlunar, fyrir verkefni sem telja má nýsköpun á Norðausturlandi. Stuðningur við einstaklinga getur numið allt að 400 þús. kr.  Verkefnið er hægt að vinna í samstarfi við starfandi fyrirtæki á Norðausturlandi.

Umsóknafrestur er til 20 desember

Lesa meira...
 
Styrkir til úrbóta á ferðamannastöðum 2010
þriðjudagur, 01 desember 2009


Ferðamálastofa auglýsir styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2010. Sérstök áhersla verður lögð á verkefni tengd sjálfbærri ferðaþjónustu fyrir alla sem hafa heildrænt skipulag og langtímamarkmið að leiðarljósi.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 85 - 96 af 459

vaxa-logo

 

 

Ársskýrsla VAXA 2008

ssa
Póstlisti Þróunarfélags Austurlands






 
 



hnappur_byggdastofnun lg-nmi

 

 

rts_logo_1